E60

Klassísk hönnun frá 1960

Verð frá kr. 42.000.-
(standard grind, pólýhúðuð í lit og bólstraður með leðurlíki).

kr. 44.200- eins og á mynd (E-60 standard. Bólstraður m/leðurlíki og króm grind).

E-60 Orginal hefur kóniska fætur (niðurmjóa). Setubreidd er 45 cm.
E-60 Standard hefur beina fætur (ekki niðurmjóa). Setubreidd 41 cm. Fæst staflanlegur.

 

Óhætt er að fullyrða að engin hönnun Sólóhúsgagna hefur notið meiri vinsælda en E-60 stóllinn. Stóllinn var hannaður þegar fyrirtækið var að stíga sín fyrstu skref í fyrirtækjarekstri og varð gríðalega eftirsóttur. E-60 stóllinn er ein vinsælasta framleiðsluvara fyrirtækisins. 

 

Fleiri myndir af E60:

 
 

Áklæði

Leðurlíki hefur alltaf verið vinsælasta áklæðið á E60 í gegnum árin. Við bjóðum upp á einstaklega slitsterkt leðurlíki í mörgum litum. Hér fyrir neðan er hægt að skoða úrvalið sem við bjóðum upp á.

Við mælum þó alltaf með að koma til okkar og skoða prufurnar eða fá þær sendar. Litirnir virðast oft öðruvísi á rafrænum skjá en í dagsljósi.

 
 

Vinsamlegast hafið samband til að fá verð í aðrar útfærslur.
Verðið er m.v. fjölda uppá 1-8 stk. Ef um meira magn er að ræða þá vinsamlegast hafið samband og við gerum tilboð m.v. magn og útfærslu