Sólóhúsgögn, specialising in the production of handmade high quality furniture

 


Heim
Vörur
Hönnuðir
Hafðu samband
Um fyrirtækið
Starfsmenn
English
Útsölustaðir
Fréttir
Myndir Frá Liðnum Atburðum
 Sólóhúsgögn : Heim / Fréttir 
Fréttir

17.02.10
Sólóhúsgögn munu taka þátt í HönnunarMars, daganna 18.- 21.03. 2010.

Í HönnunarMars í ár munu Sólóhúsgögn sýna nýja húsgagnalínu frá innanhússarkitektunum Dóru Hansen og Heiðu Elínu Jóhannsdóttur sem er að byrja í framleiðslu um þessar mundir.

Einnig verða til sýnis tveir merkir stólar sem eiga sér langa sögu í húsgagnaframleiðslu hér á landi, en þeir eru “Skata” eftir Halldór Hjálmarsson og hinn trausti og sívinsæli eldhússtóll “E-60”.

Við hvetjum alla til að láta sjá sig í Sólóhúsgögnum yfir HönnunarMarsinn og leggjum sérstaka áherslu á “Stefnumótið” á föstudagskvöldinu frá klukkan 17:00 til 19:00.

 

01.04.09
Í tilefni hönnunardaga var opið hús hjá Sólóhúsgögnum laugardaginn 28. mars milli kl. 14 og 18, þar sem kynntar voru vörur eftir hina ýmsu hönnuði, sem framleiddar eru hjá fyrirtækinu. Gestum gafst einnig kostur á að skoða málverk eftir Guðlaugu Friðriksdóttir og hlusta á ljúfa gítartóna Brynleifs Birgis, meðan þeir þáðu léttar veitingar hér í nýju húsnæði að Gylfaflöt 16-18.
 
17.janúar.2008
Dagana 20 til 23 janúar verður haldin sýningin Design Interiors í Birmingham í Englandi og verða Sólóhúsgögn þar með 20 fermetra bás ásamt DCK í London. Þessi sýning hefur verið mjög vel sótt af fagaðilum og bendum við á heimasíðuna www.interiorsbirmingham.com
Sólóhúsgögn verða á bás D 93
 

 
19. oktober 2007
Nú um helgina stendur yfir í Laugardalshöll sýningin Hönnun+Heimili. Sólóhúsgögn verða með bás þar og kynna það nýjasta frá fyrirtækinu, auk þess verða einhver tilboð í gangi meðan á sýningu stendur.
 

8.oktober 2007
FUNA - fréttir.
Nýlega fór fyrsta sending af stólnum "Funa" til Bandaríkjanna. Það er Bandaríska fyrirtækið Beaufurn LLC sem hefur verið með nokkur prufueintök þar vestra frá því í vor og verið að kynna hann á nokkrum sýningum. Viðbröggðin hafa verið það jákvæð að þeir sáu ástæðu til að setja í gang pöntun sem fór í skip þann 28. september. Beaufurn LLC selur mest til stofnana svo og veitingahúsa og skyndibitastaða þar sem þeir telja að "Funinn" geti komið sterkur inn. 
 
  

16. maí 2007
Umfjöllun um Sólóhúsgögn birtist í Blaðinu miðvikudaginn 16. maí.
 

 
27.mars 2007
 
Sólóhúsgögn hafa ákveðið að taka aftur þátt í sýningunni Grand Designs Live í London nú í ár. Sýningin verður haldin í Excel höllinni dagana 8. til 10. júní. Þar munu verða sýndar vörur eftir íslenska hönnuði sem þegar eru í framleiðslu auk þess munum við einnig kynna ýmsar nýjungar. Sýningin í fyrra þótti takast mjög vel og sóttu hana yfir fimmtíuþúsund manns, og er búist við enn fleiri í ár. Básinn sem við höfum fengið úthlutað er 35 fermetrar og er á besta stað miðsvæðis í höllinni. Viljum við bjóða alla sem leggja leið sína til London þessa daga velkomna á stand L-108.
 

 
1. Mars 2007
 
Fiskroð hefur verið að ryðja sér til rúms í húsgagnaiðnaði sem og í fötum og skótaui. Sólóhúsgögn hefa nýlokið við framleiðsu á stólum með hlýraroði á setu fyrir nýja skóbúð í Kaupmannahöfn sem verið er að opna þessa daganna.
Roðið er sútað hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki en salan fer í gengum Design Center Knitghtbridge í London. Ættu þvi innkaupaglaðir Íslendingar í Kaupmannahöfn að geta hvílt lúin bein á íslenskri framleiðslu þegar þeir eru að máta nýju skóna.
Svona er nú hnattvæðingin í íslenskum húsgagnaiðnaði í dag.
 
 
 

 
Dagana 2. til 5. júní tók Sólóhúsgögn þátt í sýningunni Grand Design í London, ásamt DCK versluninni í Knightsbridge og var kynnt þar það nýjasta frá Sóló s.s. stól hannaðan af Sigurði Gústafssyni og annan eftir Pétur Lúthersson og einnig hillu eftir Dögg Guðmundsdóttir.
 
 
 
 
 

Sólóhúsgögn | Gylfaflöt 16-18 | IS - 112 Reykjavik | Iceland | Tel/Sími  + 354 553 5200 | Fax + 354 553 5005 | solo@solo.is

Print / Print   Site Map / Veftré